Íslendingar í SS
Kunnugt er um níu menn af íslensku bergi brotna sem þjónuðu í SS-sveitum Hitlers. Þeir voru:
Björn Sv. Björnsson (Fæddur í Reykjavík 1909. Hóf störf hjá umboðsskrifstofu Eimskips í Hamborg árið 1930 og rak frá miðjum 4. áratugnum eigið fyrirtæki þar í borg, til ársins 1938, en vann um skeið eftir það í Danmörku. Vorið 1941 hóf hann störf hjá þýskri verksmiðju í Hamborg og gerðist sjálfboðaliði í Waffen-SS síðsumars 1941. Sendur til starfa hjá stríðsfréttaritaradeild SS í ársbyrjun 1942 og til austurvígstöðvanna í kjölfarið. Hækkaður í tign og gerður að SS-Sturmmann vorið 1942 og að nýju um haustið, þegar hann varð gerður að SS-Unterscharführer, og gekk í framhaldinu í foringjaskóla hjá Waffen-SS í Bad Tölz. Þegar hann stóðst loks próf var hann enn hækkaður í tign og gerður að SS-Oberscharführer. Hann var í kjölfarið gerður að yfirmanni útibús stríðsfréttaritaradeildar í Kaupmannahöfn. Sumarið 1944 var hann hækkaður í tign upp í stöðu SS-Untersturmführer. Um haustið hertók hann hús danska útvarpsins með valdi, að fyrirmælum yfirboðara sinna, og var útvarpsstjóri þar um hríð. Einnig ritstýrði hann harðskeyttu SS-áróðurstímariti er út kom á dönsku og kom á stuttbylgjusendingum til Íslands. Sat í fangelsi í Danmörku í eitt ár að stríði loknu. Komst til Íslands með fiskibáti í júní 1946, með viðkomu í Svíþjóð. Hann bjó síðan um langt skeið í Argentínu og öðrum löndum en fékkst síðan m.a. við kennslu hérlendis. Hann lést 1998.
Geir Þorsteinsson (sjá grein).
Gunnar Guðmundsson Fæddur 1917 í Reykjavík. Kom til Danmerkur vorið 1941, eftir ævintýralegt ferðalag um hálfan hnöttinn. Var í fyrstu í þjónustu þýsku leyniþjónustunnar í Kaupmannahöfn við að afla nýrra liðsmanna. Gerðist sjálfboðaliði í fréttaritaradeild SS í byrjun júlí 1944, en leystur frá störfum í byrjun mars 1945, eftir nokkurra mánaða veikindi. Flutti til Íslands sumarið 1946 en rak síðan frímerkjasölu í Kaupmannahöfn, en frá 1960 sölumiðstöð fyrir kínverskar vörur. Dánarár óvíst.
Hólmsteinn Kristjánsson Sonur Sigurðar Kristjánssonar ritstjóra og danskrar konu. Búsettur í Danmörku en íslenskur ríkisborgari að því er virðist. Lést 1945, 18 ára gamall.
Post too long. Click here to view the full text.