Ég get ekki meir. Síðustu daga hef ég gengið um eins og í martröð. Ég er búin að öskra mig hása og ég skelf meðan ég skrifa þetta.
“Íslenska þjóðfylkingin?” Eins og Útlendingastofnun sé ekki að standa sig nógu illa er kominn stjórnmálaflokkur sem skilgreinir stefnu sína út frá hryðjuverkamönnum og predikar andúð á íslam? Flokkurinn er í sjálfu sér ekki áhyggjuefni – hann mun deyja út eins og allir aðrir flokkar sem spretta upp í andstöðu við tímabundna krísu. Það sem veldur mér áhyggjum (mjög vægt til orða tekið) er að slíkar manneskjur fyrirfinnist. Hversu mikla fáfræði, ótta og mannhatur þarf til að nokkur kenni sig stoltur við útlendingahatur/rasisma.
Ég er hálfur arabi. Ég viðurkenni fúslega þau forréttindi sem ég hef notið vegna þess að vera hálf hvít. En ég er líka fús til að afsala mér þeim svo staða manna jafnist um allan heim. Ég ætla ekki að sýna umburðarlyndi gagnvart “þetta er flókið” eða “málfrelsi”. Það er ekkert flókið við að taka afstöðu. Annað hvort styður þú fordóma, mannfyrirlitningu og eyðileggingu eða þú stendur fyrir uppbyggingu, kærleika og mannréttindum. Og, í eitt skipti fyrir öll, ég þarf ekki að virða þína skoðun ef sú skoðun vanvirðir tilvistarrétt annarrar manneskju.
Ég held ég hafi verið 10 ára þegar ég gekk upp að bekkjarsystkinum mínum í Hvassaleitisskóla og spurði forviða hvers vegna þau væru að kasta steinum í yngri strák (þið vitið hver þið eruð). Einn þeirra svaraði “Af því hann er gyðingur” en annar bætti við með ósvífni og myrkri í röddinni sem ég mun aldrei gleyma: “Nei, verra… Hann er múslimi.” Það er fátt sem ég hef séð meira eftir en að hafa ekki sagt eitthvað. Í staðinn fór ég inn á klósett og kúgaðist allar frímínúturnar. Einhvern veginn hafði þessum krökkum innræst að þau mættu grýta samnemanda sinn fyrir að hafa aðrar trúarskoðanir. Síðan er liðinn áratugur og fullorðið fólk stofnar Þjóðfylkinguna.
Ég get vel sett mig í spor þeirra sem eru frávita af hræðslu. Hryðjuverkaárásir eru ógnvekjandi. En það er ófyrirgefanlegt að setja sjálfan sig í sæti fórnarlambs og kenna svo raunverulegu fórnarlömbunum, múslimum, um. Ef þú skilur ekki tengslin milli stríðsreksturs, viðskipta, trúarbragða og mannréttindabrota, þá áfellist ég þig ekki – það er ekki beiPost too long. Click here to view the full text.