http://www.visir.is/varathingmadur-pirata-vaendur-um-ad-vera-logreglumadur/article/2015150629915
>„Ég var nú bara í venjulegum bol. Ég æfi reyndar kraftlyftingar og það má vel vera að fólk hafi haldið að ég væri lögga út af því,“ segir Jóhann Haukur Gunnarsson, varaþingmaður Pírata, sem varð fyrir töluverðu áreiti í nótt af hálfu tónlistargesta á Secret Solstice sem margir hverjir töldu hann vera óeinkennisklæddan lögreglumann.
>Jóhann segist hafa verið í mestu makindum að njóta tónlistarinnar á hátíðinni þegar fólk tók að vinda sér upp að honum og væna hann um að vera að fylgjast með sér. Hann hafi komið algjörlega af fjöllum enda sjálfur óbreyttur gestur á tónlistarhátíðinni.
>Alls hafi hann fjórum sinnum þurft að svara spurningum frá ásakandi tónlistargestum áður en hann hafi labbað úr þvögunni og tyllt sér á nærliggjandi bekk. „Þá gekk upp að mér strákur og hreytti í mig: „Ertu lögga?“ Þegar ég neitaði því og spurði hvers vegna hann héldi það sagði strákurinn að honum hafi verið sagt það,“ segir Jóhann.
>Áreitið ágerðist eftir því sem leið á kvöldið og segir Jóhann að það hafi endað með því að kærustupar króaði hann úti í horni, „með ofbeldisfullum töktum“ og látið hann heyra það fyrir að vera óeinkennisklæddur lögreglumaður sem hann kannaðist ekkert við.