Ég er stoltur af SUS og Sjálfstæðisflokknum fyrir að standa vörð um Kokkáls-Íhaldssemina, sem varð aðal hugsjón Sjálfstæðisflokksins á yfirstöðnu Landsþingi.
http://www.dv.is/frettir/2015/10/26/aslaug-svarar-gustaf-tokum-harda-afstodu-gegn-svona-malflutningi/
Hér er svo Nasistatillaga Gústafs Níelssonar og Jóns Magnússonar, sem Guðblessanlega var neitað:
>Ísland hefur frá því að land byggðist tekið við erlendum hugmyndum og menningarstraumum. Innflytjendur hafa komið til landsins, lagað sig að og orðið hluti af íslensku samfélagi. Íslenska þjóðin hefur jafnan tekið við erlendum áhrifum á móðurmál sitt og menningu á eigin forsendum. Með þeim hætti hefur hún varðveitt tungumál sitt og fornan menningararf í samfélagi þjóðanna. Eitt af hlutverkum Sjálfstæðisflokksins er að standa vörð um þessar meginstoðir þjóðernisvitundar okkar, ef þær bresta, gæti sjálfstæði Íslendinga og þjóðarvitund verið í hættu.
>Á síðustu áratugum hefur fjöldi ólöglegra innflytjenda frá þróunarlöndunum aukist gríðarlega í öllum hinum vestræna heimi. Þessi þungi straumur innflytjenda er afleiðing af því að fjöldI landa þróunarlöndunum hefur af mörgum ástæðum ekki tekist að þróa samfélög, þar sem ungu fólki er boðið upp á eðlileg tækifæri í lífinu, m.a. vegna hernaðarátaka og kennisetninga í stjórnmálum og trúmálum sem hamla eðlilegum framförum og bættum lífskjörum. Lausnin á vandamálum þessara ríkja er ekki fólgin í því að Ísland eða önnur Evrópuríki opni landamæri sín fyrir snöggum og óskipulögðum straumi innflytjenda sem getur í senn ógnað þeim félagskerfum sem Vesturlönd hafa þróað með sér og gefið öfgaöflum frjóan jarðveg til fjandskapar og jafnvel ofsókna á hendur nýbúum. Lausnin verður að beinast að því að hjálpa þróunarlöndunum til framfara og nútímalegra hátta á grundvelli þeirra gilda sem áttu mestan þátt í að skapa auðlegð Vesturlanda, svo sem frelsi einstaklinganna, lýðræði, jafnstaða borgaranna, upplýsing og almannafræðsla.
>Sjálfstæðiflokkurinn vill að Ísland axli ábyrgð á því að taka á móti raunverulegu flóttafólki samkvæmt skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna varðandi málefni flóttafólks frá 1951. Flokkurinn vill að þetta sé gert á grundvelli þeirrar stefnu sem landið hefur fylgt í þessum efnum. Almennt er viðurkennt að þessi stefna hafi reynst einstaklega farsæl, bæði fyrir flóttafólk og landsmenn enda hefur tekist að koma í veg fyrir þau átök og umbrot, sem sett hafa svip sinn á sum samfélög og verið vatn á myllu öfgaafla á báðar hliðar. Lykilatriði í þesari stefnu er að forðast snöggar breytingar sem valdið geta ólgu og átökum í samfélaginu svo sem bent er á í skýrslu nefndar utanríkisráðuneytisins um áhættumat fyrir Ísland 2009. Samkvæmt hefðbundinni stefnu eigum við að kappkosta að taka á vel á móti flóttafólki sem kemur til landsins frá stríðshrjáðum ríkjum eða öðrum sem ógna öryggi viðkomandi einstaklings og gæta þess að réttindi þeirra séu virt og þeir njóti grundvallarréttinda á við aðra. Sjálfstæðisflokkurinn vekur um leið athygli á því að Íslandi ber engin skylda til að taka á móti fólki sem flóttafólki, sem hefur farið á milli öruggra landa í því skyni að sækja sérstaklega um hæli hér á landi..
>Innflytjendur sem aðlagast íslensku samfélagi og menningu hafa lagt mikið af mörkum til íslensks samfélag og munu tvímælalaust halda áfram að gera það um ókomna tíð. Kunnátta í íslensku máli hefur reynst þeim mörgum lykill að samfélaginu og því ber að efla íslenskunám fyrir nýbúa. Sjálfstæðisflokkurinn styður að Ísland taki sem fyrr vel á móti vel hæfu og velmenntuðu fólki sem vill freista gæfunnar á Íslandi og samlagast þjóðinni og veiti þeim öll réttindi svo fljótt sem verða má og gæti þess að þeir ásamt þeim flóttamönnum sem hingað koma með löglegum hætti njóti jafnréttis á við aðra sem hér búa.
>Ísland hefur jafnan notið góðs af innflytjendum. Stærsti hluti þeirra hefur aðlagast íslensku samfélagi og sannað að það er duglegt og framtakssamt fólk. Þó að Ísland hafi notið þess að hingað hafi einkum flust nýtir borgarar, verður að gæta þess hve fámenn íslenska þjóðin er. Það er engum til góða að rjúfa jafnvægið í samfélaginu og trufla aðlögun nýbúa með því að opna landið fyrir straumi á borð við þann sem nú flæðir að landamærum Evrópu og hlýtur fyrr eða síðar að verða stöðvaður, vonandi aðeins með friðsamlegum og sanngjörnum hætti. Íslendingar verða hvað sem öðru líður, að benda yfirvöldum Evrópusambandsins og annarra sem hlut eiga að máli á sérstöðu sína sem þrjúhundruð og þrjátíu þúsund manna þjóð og gæta þess að fá undanþágu frá óheftri för fólks af Evrópska efnahagssvæðinu til landsins.“
>Sjálfstæðiflokkurinn vill að Ísland axli ábyrgð á því að taka á móti raunverulegu flóttafólki samkvæmt skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna varðandi málefni flóttafólks frá 1951.
>Samkvæmt hefðbundinni stefnu eigum við að kappkosta að taka á vel á móti flóttafólki sem kemur til landsins frá stríðshrjáðum ríkjum eða öðrum sem ógna öryggi viðkomandi einstaklings
> Sjálfstæðisflokkurinn vekur um leið athygli á því að Íslandi ber engin skylda til að taka á móti fólki sem flóttafólki, sem hefur farið á milli öruggra landa í því skyni að sækja sérstaklega um hæli hér á landi.
Sjáið. Ógeðslegu nasistarnir vilja bara taka á móti raunverulegu flóttafólki, sem kemur frá stríðshrjáðum ríkjum, eða ríkjum sem ógna öryggi einstaklingana og hafa ekki farið í gegnum örugg lönd til að sækja sértaklega um hæli hér.
Ég hef aldrei verið eins stoltur af því að vera Kokkáls-Íhaldsmaður.