[ / / / / / / / / ] [ b / news+ / boards ] [ operate / meta ] [ ]

/isl/ - Ísland

Have eru konar síðurnar?

Catalog

Name
Email
Subject
Comment *
File
* = required field[▶ Show post options & limits]
Confused? See the FAQ.
Embed
(replaces files and can be used instead)
Options
dicesidesmodifier
Password (For file and post deletion.)

Allowed file types: jpg, jpeg, gif, png, webm, mp4, swf, pdf
Max filesize is 8 MB.
Max image dimensions are 10000 x 10000.
You may upload 5 per post.


Reglurnar

#iceland á irc.ihazurinter.net

jonforseti@8chan.co


 No.902

>Borg­ar­full­trú­ar Sjálf­stæðis­flokks­ins ætla að leggja fram til­lögu á borg­ar­stjórn­ar­fundi í dag um að leik­skól­ar Reykja­vík­ur­borg­ar taki ekki við óbólu­sett­um börn­um án lækn­is­fræðilegra ástæðna.

>Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins, seg­ir að með þessu sé verið að bregðast við þeirri nýju ógn sem steðjar að í Vest­ur­heimi en gaml­ir smit­sjúk­dóm­ar eins og misl­ing­ar hafa verið að stinga þar upp koll­in­um síðustu mánuði.


>„Hug­mynd­in er sú að Reykja­vík­ur­borg, sem er stærsta þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins, þá ekki síst gagn­vart börn­um, stígi fram með gott for­dæmi um að við sem sam­fé­lag stönd­um sam­an að því að þess­ir sjúk­dóm­ar dúkki ekki hérna upp,“ seg­ir Hild­ur í sam­tali við mbl.is.


>Hún seg­ir að miðað verði við þær lág­marks­bólu­setn­ing­ar sem mælt er með á hverju ald­ursári sam­kvæmt embætti Land­lækn­is. Aðspurð hvort að til­lag­an eigi sér er­lenda fyr­ir­mynd seg­ir Hild­ur að bólu­setn­ing­ar séu al­geng skil­yrði fyr­ir leik­skóla­vist í Banda­ríkj­un­um.


>„Svo er umræða núna að dúkka upp í lönd­un­um í kring­um okk­ur út af þess­ari nýju vá, til dæm­is í Berlín þar sem að barn dó úr misl­ing­um,“ seg­ir Hild­ur.


>Hild­ur á erfitt að segja til um hvernig brugðist verði við til­lögu flokks­ins á borga­stjórn­ar­fundi í dag. „En ég skil að fólki bregði og finn­ist þetta of mikið inn­grip eða of íþyngj­andi en ég er ekki sam­mála því. Ég er að reyna að huga í lausn­um og finna leið til þess að stíga skref inn í framtíðina en passa það að gæta að meðal­hófi. Við erum ennþá í þeirri lúx­us stöðu að þetta er ekki orðið aðkallandi vanda­mál. Við erum ekki kom­in á hættu­stig enn sem komið er sem er mjög gott mál,“ seg­ir Hild­ur.


>Hún seg­ir að þar sem að vanda­málið sé ekki orðið aðkallandi hér á landi verður miðað við að skil­yrðin eigi aðeins við ný­skrán­ing­ar á leik­skóla borg­ar­inn­ar.


>„Börn sem að eru í leik­skól­an­um þegar verða ekki tek­in úr sínu fé­lags­lega um­hverfi og frá vin­um sín­um. Við erum sem bet­ur fer ekki kom­in á þann stað ennþá. En með þessu vilj­um við stíga skref inn í framtíðina svo við þurf­um aldrei að gripa til enn íþyngj­andi aðgerða útaf því að hætt­an orðin aðkallandi.“


>Reykjavik

>nei
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/03/17/bolusetning_verdi_skilyrdi/


Delete Post [ ]
[]
[Return][Go to top][Catalog]
[ / / / / / / / / ] [ b / news+ / boards ] [ operate / meta ] [ ]